eXTReMe Tracker
G-sus á Íslandi: september 2007

laugardagur, 29. september 2007

Samanburður

Samanburður við Ísland... Alltaf.
Verð, föt, þjónusta, matur, hreinlæti, vatn, samgöngur svona til að nefna eitthvað. Það er aðeins tvennt þessa stundina sem ég sé hvar Ísland hefur vinninginn: Vatn og lakkrís.

Það er óhætt að drekka vatnið úr krananum hérna, en maður gerir það ekki nema maður vilji vatn með klórbragði. Of góðu vanur á Íslandi til að skipta yfir í klórvatn, því miður.
Lakkrís... Japanir borða ekki lakkrís. Þið haldið að þetta sé alhæfing hjá mér, en þetta er bara málið. Það er ekki hægt að finna lakkrís út í búð. Súkkulaði er málið og súkkulaði í allskonar bragðtegundum. Súkkulaði í bragðtegundum? Er súkkulaði ekki bragðtegund út af fyrir sig? Ég prófaði bananasúkkulaði um daginn og var ekki að fíla það.
Pringles er líka hægt að fá með allskonar bragði sem þú sérð ekki í hillum heima. Fínt þetta cheese gratin bragð sem við prófuðum. KitKat... the same. Kiwi KitKat er sérstakt á bragðið en þó er KitKat með bragði af hnetum og grænu te-i enn sérstakara.
Sem betur fer eru þetta nú ekkert það mikilvæg atriði, en ég ákvað að reyna að týna eitthvað til og þetta er það sem ég fann.

Hérna rétt hjá er búð sem sem selur notaðar vörur. Ég fann 24" sjónvarp þarna inni á 12 þúsund jen og ákvað að skella mér á það. Þetta er forláta Mitsubishi sjónvarp (Eiki hefði verið stoltur) og það virkar fínt. Ég næ heilum 10 stöðvum, öllum japönskum. Mikil snilld að hafa sjónvarp og geta hlustað á japönskuna eftir pöntun. Best finnst mér að hlusta á fréttirnar því þau verða að tala skýrt þar og maður nær stundum orði og orði ef maður fylgist vel með.

Ísland sést ekki á veðurkortinu hérna. Það er mynd af öllum heiminum en línan skiptist í miðju Atlantshafinu, akkúrat á Íslandi.
Djööös diss.

Áfram gengi!! Ég fylgist grant með gangi mála á japanska jeninu og hvernig það stendur á móti krónunni. Komið niður í 0.53 sem er algjör snilld fyrir mig. GO GO GO GO!!!

Svo er bara að vona að Daði kallinn nái að halda sér í deildinni. Ef mér reiknast rétt til þá byrjar leikurinn eftir hálftíma. Það væri of glatað að falla þetta árið.

Það eru komnar nýjar myndir á myndasíðuna. Linkur hérna uppi til hægri.

Setjum L hér.

sunnudagur, 23. september 2007

Konnichiwa!

Hjá mér er hinsvegar nótt þannig kveðjan ætti að hljóma öðruvísi.
Hérna hefur allt gengið mjög vel. Hitastigið kom vel á óvart. Rúmlega 30 gráður og við erum að leka niður. Það hefur hinsvegar ekki verið neinn tími til að leka niður því við höfum verið mjög uppteknir við að kynna okkur svæðið og kaupa okkur það helsta til að koma herbergjunum í stand fyrir komandi skólaár. Við höfum ferðast alveg helling í strætó, lestum og neðanjarðarlestum á ekki meira en bara þessum rúmlega 3 dögum. Erum orðnir nokkuð sjóaðir og látum okkur t.d. ekki bregða þó svo við förum inn að aftan í strætó, tökum miða og borgum svo á leiðinni út.

Frekari lýsingar á fólkinu, menningunni og viðhorfinu verður að koma seinna þegar ég hef náð að melta þetta betur með mér. Eins og er hef ég ekkert nema gott um þetta að segja og vonandi breytist það bara ekki baun.

Fékk mér myndavél loksins og þið getið nálgast myndirnar mínar hér:
http://picasaweb.google.com/gustafh
Ég hugsa að myndirnar verði það áhugaverðasta við þetta blogg. Þið verðið að lesa lýsingarnar mínar við myndirnar svo þið fáið allt beint í æð.

Nokkrar athugasemdir sem ég vil koma á framfæri uppá framtíðina. Til að hafa staðarnöfn sem réttust, þá skrifa ég þau eins og hljóðin eru þýdd yfir á rómversku táknin okkar sem við höfum öll lært að elska. Til dæmis borgin mín, Kyoto, heitir réttara nafni Kyooto. Ég hreinlega veit ekki af hverju fólk utan Japan byrjaði að stytta þessa löngu sérhljóða í skrift. Ekki eins og það muni eitthvað miklu, en rétt skal vera rétt og ég skal vera anal.
Annað.. "Yen" (eða "Jen") er notað allsstaðar annarsstaðar nema í Japan. Táknið þeirra fyrir jen er ekki einu sinni líkt því sem við höfum séð. Hjá þeim heitir jen líka "enn", eða þannig hljómar það allavega í framburði. Ég skrifa samt sem áður bara "jen" uppá gömlu góðu íslenskuna.

Bless á meðan.
GLJ

laugardagur, 22. september 2007

Lost in translation, einhver?