Strætó
Já, strætóferðin gamla... Var alveg búinn að gleyma henni þar sem enginn minnti mig á hana !!
En jú, strætóferðin ógurlega fyrir 3 vikum síðan.. Sumsé, til að komast í vinnuna þá tek ég tólfuna frá mér og niður á Hlemm. Þar á hann að koma 07:36 sem á að gefa mér nægan tíma til þess að ná fjórtáninum sem fer út á Granda klukkan 07:40. Þennan morgunn mætti tólfan niður á Hlemm klukkan 07:40. Ég horfði á klukkuna í strætó breytast úr 07:39 í 07:40 þegar ég steig niður á gangstéttina. Ég leit svo í kringum mig og sá engan 14... Hugsaði auðvitað með mér að hann væri bara seinn fyrir líka. Beið þar til klukkan var 07:45 og ákvað þá að taka bara skokkið niðrí vinnu. Huggulegt það að mæta sveittur í vinnuna. Góð byrjun á vinnudeginum. Stimplaði mig inn klukkan 08:01 og fyrsta sem ég gerði eftir það var að hringja niðrí Strætó og kvarta.
Eftir þetta tók ég eftir því að tólfan mætir alltaf á sama tíma niður á Hlemm: 07:39 alveg að slá 07:40.
Strætóar á Íslandi eru alltaf seinir. Þetta er búið að vera svona eins lengi og ég man eftir mér. Ég skil ekki hvernig það er hægt? Ég meina, 1 - 2 mínútur til eða frá er allt í lagi, en ekki 4 mínútur.
Ef ég væri gaurinn (gerandi ráð fyrir að það sé bara einn gaur) sem setur niður tímana á leiðakerfið, þá myndi ég taka tímana sem mér væru gefnir og bæta nokkrum mínútum við þá.
Þá væri samtalið mitt við manninn (gerandi ráð fyrir að það sé bara einn maður) sem rannsakar strætótímanna eitthvað á þessa leið:
Maður sem rannsakar strætótíma: "Herra! Herra! Við höfum rannsakað þetta í þaula og tólfan á að mæta niður á Hlemm klukkan 07:36!"
Ég: "Og þið hafið rannsakað þetta fram og til baka?"
Msrs: "Já, við höfum eitt heilu ári í rannsóknir á strætó á þessari leið. Það er enginn spurning. 07:36"
Ég: "Og þið eruð alveg 100% vissir?"
Msrs: "Já, eins vissir um þetta eins og við vitum að ABBA sökkar"
Ég: "Ókei. Ég set þá niður að hann mæti niður á Hlemm klukkan 07:40."
Einfalt mál. Pís off keik.
"Þetta er bara svoleiðis, sko"

2 Ummæli:
Strætó er handbendi djöfulsins, Gorg busk, idi amín og halim al!
Melovegee.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim