eXTReMe Tracker
G-sus á Íslandi

sunnudagur, 23. september 2007

Konnichiwa!

Hjá mér er hinsvegar nótt þannig kveðjan ætti að hljóma öðruvísi.
Hérna hefur allt gengið mjög vel. Hitastigið kom vel á óvart. Rúmlega 30 gráður og við erum að leka niður. Það hefur hinsvegar ekki verið neinn tími til að leka niður því við höfum verið mjög uppteknir við að kynna okkur svæðið og kaupa okkur það helsta til að koma herbergjunum í stand fyrir komandi skólaár. Við höfum ferðast alveg helling í strætó, lestum og neðanjarðarlestum á ekki meira en bara þessum rúmlega 3 dögum. Erum orðnir nokkuð sjóaðir og látum okkur t.d. ekki bregða þó svo við förum inn að aftan í strætó, tökum miða og borgum svo á leiðinni út.

Frekari lýsingar á fólkinu, menningunni og viðhorfinu verður að koma seinna þegar ég hef náð að melta þetta betur með mér. Eins og er hef ég ekkert nema gott um þetta að segja og vonandi breytist það bara ekki baun.

Fékk mér myndavél loksins og þið getið nálgast myndirnar mínar hér:
http://picasaweb.google.com/gustafh
Ég hugsa að myndirnar verði það áhugaverðasta við þetta blogg. Þið verðið að lesa lýsingarnar mínar við myndirnar svo þið fáið allt beint í æð.

Nokkrar athugasemdir sem ég vil koma á framfæri uppá framtíðina. Til að hafa staðarnöfn sem réttust, þá skrifa ég þau eins og hljóðin eru þýdd yfir á rómversku táknin okkar sem við höfum öll lært að elska. Til dæmis borgin mín, Kyoto, heitir réttara nafni Kyooto. Ég hreinlega veit ekki af hverju fólk utan Japan byrjaði að stytta þessa löngu sérhljóða í skrift. Ekki eins og það muni eitthvað miklu, en rétt skal vera rétt og ég skal vera anal.
Annað.. "Yen" (eða "Jen") er notað allsstaðar annarsstaðar nema í Japan. Táknið þeirra fyrir jen er ekki einu sinni líkt því sem við höfum séð. Hjá þeim heitir jen líka "enn", eða þannig hljómar það allavega í framburði. Ég skrifa samt sem áður bara "jen" uppá gömlu góðu íslenskuna.

Bless á meðan.
GLJ

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Er að horfa á japanska mynd á rúv og hún er ógeðslega leiðinleg.
KOmdu heim!

sun. sep. 23, 10:27:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvernig er það, ert þú aldrei á msn kjepps?

mán. sep. 24, 01:38:00 f.h.  
Blogger G-Sus sagði...

Ég var einmitt á msn eftir að ég póstaði þessu bloggi.
Ég bætti þér við inná msn-ið mitt fyrir viku síðan og ég held ég hafi rétta emailið þitt, dadigud@hotmail.com
Ef það er ekki rétt, bætt þú þá mér inná þitt frekar: geelovejapan@hotmail.com

mán. sep. 24, 06:22:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Starter wife var að byrja!!!

mið. sep. 26, 10:08:00 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim