Blablabla
Seinasta skólavika gekk bara nokkuð venjulega fyrir sig. Ennþá alveg vel heitt og það hefur verið mjög lítið um rigningu. Einn kennarinn í japönskutímunum er alveg snarklikkaður, en á skondin hátt. Hann spilar alltaf jazzmúsík á segulbandsspólu meðan hann er að kenna, hefur það bara lágt stillt í bakgrunninum. Kallinn er allt annað en rólegur og veltir sér stundum uppúr gólfinu í miðjum tímum. Ef ég gæti bara tekið vídjó af þessu...
Á föstudaginn var "welcome party", fyrir okkur nýju skiptinemana, í skólanum. Þar mætti fullt af fólki og Bragi þurfti að halda örlitla tölu fyrir hönd okkar skiptinemanna. Þessi stutta ræða hans fer í sögubækurnar fyrir þær sakir að hún byrjaði einhvernveginn á þennan veg:
"Good evening, ladies and gentlemen, or as we say in Icelandic... 'Melludólgur'"
Þetta gat hann sagt fyrir framan svona 100 manns án þess að missa andlit. Impressive stöff. Við vissum af því að hann ætlaði að segja þetta svo við náðum að bæla niður flissið einhvernveginn.
Eftir einhverjar stuttar ræður og kynningar var boðið uppá mat og drykk og fólki leyft að 'mingla'. Við Íslendingarnir fengum alveg sérstaka athygli og sér í lagi frá asísku kvenþjóðinni... Hmm... ekki vanur því. Ég var klæddur í kínverska jakkann minn og því var ég vinsælt myndefni hjá kínversku stelpunum. Öllum fannst mjög gaman að reyna að bera fram nöfnin okkar og gekk það misvel hjá fólki. Svo gekk okkur nú ekkert sérstaklega vel að reyna að bera fram nöfnin á kínverjunum, það er alveg kreisíj tungumál sem þetta líð hefur. Tónhæðin skiptir öllu máli.
Í dag var frídagur hjá Japönum ('Health and Sports Day') svo við notuðum tímann og fórum á Kyooto National Museum. Það er eitthvað með mig og söfn. Ég þoli þau bara visst lengi áður en ég missi áhugann og verð eirðarlau. Sem betur fer var safnið ekkert gríðarstórt og það sem við sáum var misáhugavert og eiginlega ekki bloggefni. Hinsvegar, þá vorum við viðstödd teathöfn sem var gaman að prófa. Þvílík seremónía sem er í kringum þetta að það er alveg svakalegt. Þetta er list fyrir þessu fólki. Svo fengum við að dreypa á te-inu sem hún var að hella uppá konan. Því miður fyrir mig er ég ekki mikill te maður, því það er svakalega mikil te menning hérna. Kannski næ ég að breyta þessum bragðlaukum eitthvað á þessu 10 mánaða tímabili.
Nokkrar nýjar myndir búnar að bætast við.
Þar til næst.

3 Ummæli:
Strax byrjaður að hözzla! :)
Gústi þó!!!
Go Gústi! Shiiiiii...
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim